Peking - Japan - ÍslandFarfuglar

Well, hello there !

I Peking skoðuðum vid líka forboðnu borgina, keisarahöllina i Peking, allt alveg ægilega flott og ómadi lagið "Það kvað vera fallegt í Kína... " í hugum okkar.  Þar hittum vid líka Candy sem bauð okkur ferð að Kínamúrnum á spottprís, við tókum því og átti hennar föruneyti ad ná í okkur a hostelid, 8 morguninn eftir.  Við vorum reddí fyrir dýrðina á slaginu 8 en ekkert bóladi á Candy.  Báðum við þá hostelfolkið að hringja fyrir okkur og var okkur þá sagt að þau væru a leiðinni.  Svo kom par a þvílíku glæsikerrunni, löngum peugeout 87 módel,



báru tvi við ð umferðin hefði verið svo mikil og að bíllinn hefði bilað.  Við tróðum okkur inn og hófst svo förin.  Þegar komið var að Badaling (partinum sem við sáum múrinn )  var komið að þvi að fara i stólalyftum upp, Birta dó næstum úr lofthraeðslu, þar sem þetta var opið og hún var ein i lyftu.  En þegar upp var komið var þetta allt þess virði.  Við löbbuðum smá að múrnum, tókum ógrynni af myndum og renndum okkur svo niður.  Ja madur rennir ser nidur fra kinamurnum, Elmar gerdi tau mistok ad vera aftastur og forum vid ekki nogu hratt ad hans mati, hehe.  Okkar reynsla af kinverjum er ad tau eru virkilega forvitid folk og frekt.  Alltaf tegar vid bidum stillt og prud i rodinni eftir metroinu eda a leidinni yfir gotuna var svoleidi valtrad yfir okkur !  En annars ta attum vid ljomandi goda tima i Peking.  Skiptum um hostel og vorum tvaer naetur i partyhverfinu og kiktum sma ut baedi kvoldin, hittum fullt af skemmtilegum krokkum.  Elisabet klaradi moppuna fyrir Listahaskolann og sendi hana fra Peking.  

Vid lentum heimilislaus i Tokyo, eitthvad hafdi nu farist fyrir ad boka hostel og hlogu landamaeraverdirnir bara af bjartsyninni i okkur ad hafa engan samastad i milljonaborg a laugardagskvoldi.  Vid aetludum ad taka Islendinginn a tetta og lata tetta reddast en allt kom fyrir ekki !  Tad var ekki eitt einasta hostel laust i allri borginni !  Svo vid endudum med ad eiga nott a Narita flugvellinum, sem var hin skitnasta ! Vid vorum lent um 8, allt lokadi um 9 svo vid nadum ekki ad fa okkur neitt ad borda, svo var okkur bent a ad koma a haedina fyrir nedan og vorum latin sofa tar inni lokud og voktud af oryggisvordum, allt annad en naeturnar sem vid attum a flugvellinum i Bangkok.  Vid svafum misvel, med hrjotandi folk i kringum okkur og voknudum svo til ad taka lest til Tokyo og fara a eina hostelid sem laust var ! Það var skrítnasta hostel sem við höfum farið á ! Var svona einsog eigendurnir hefðu farið á Sorpu og fengið allt afgangs tréruslið og rennihurðirnar og smíðað svo úr því bása með kojum.  Ég var í efri koju og gat hún séð yfir í næsta herbergi, hver var að hrjóta þar og svona, hehe.  En það gekk nú ekki áfallalaust fyrir okkur að komast að því hosteli, einsog áður þurftum við að taka 2 leigubíla og ég og Kristín fóru í einn og svo hin 3 í hinn.  Ég og Kristín komust að leiðarenda á skot tíma en þau hin voru lost in translation í Tokyo í um 2 tíma.  Okkur stóð nú ekki á sama, þar sem símarnir okkar virkuðu ekki, þau voru með hvoruga lonely planet bókina, ekkert kort, ekkert heimilisfang og vissu ekki einu sinni nafnið á hostelinu ! En þau dóu nú ekki ráðalaus, hittu prýðis mann sem hjálpaði þeim að finna netkaffi og þá vorum við Kristín búnar að senda þeim heimilisfangið og þau komus heim heilu og höldnu 2 tímum síðar.
Vid vorum a Cherry blossom tima i Japan sem var hreint yndislegt !  Trén eru svo falleg ad ord fa tvi ekki lyst, tókum ogrynni af myndum af teim.  Forum svo til Kyoto a fimmtudaginn og saum tar fallegustu gotu i Asiu og stod hun svo sannarlega undir vaentingum. Tokyo líkaði okkur öllum afbragðsvel ! Það er svo skemmtilegt hvað allt er stílhreint, tæknilegt og hvað þeir þurfa að vera öðruvísi með allt.  Þeir hugsa einhvernvegin alltaf aðeins lengra fyrir mann og t.d. fylgdu lítil bréf tyggjópakka, svona svo maður myndi ekki henda tyggjóinu á götuna, heldur hefði bréf til að setja það í.  

Nú, 3 mánuðum, 11 löndum, 27 hostelum, 4 flugvallarnóttum, 10 næturrútum, 18 flugferðum, 10 gjaldmiðlum  og mörgum moskítóbitum síðar, erum við komin heim í faðm fjölskyldu og vina reynslunni ríkari og víðsýnni sem aldrei fyrr !  Það er hreint yndislegt !  En okkur er samt strax farið að dreyma um næstu ferð !  Ég, Birta, vil fyrir hönd okkar farfuglanna þakka ykkur fyrir að fylgjast með okkur og takk fyrir að vera dugleg að kommenta, ég vona að við höfum skemmt ykkur með frásögnum okkar og nó er til af þeim ennþá !

Arigato (takk á japönsku), obrigado (takk á portugölsku), takk (á hinu ylhýra) ! 



Birta, Elísabet, Harpa, Kristín Telma og Elmar

Taeland - land brosannaFarfuglar

Tessi setning tok a moti okkur tegar vid stigum faeti a Taeland.  Tad er mikid til i tessari setningu tar sem Taelendingar koma fyrir sem glod tjod med bjortu yfirliti.  Einnig brosti eg allan hringinn alla veru mina i tessu landi.  Einhverra hluta vegna var allt svo broslegt, oft atti eg hreinlega erfitt med mig ad fa ekki krampakast ur hlatri.  Asiuenskan er alveg met, eg sa t.d. hvergi "french fries eda chips" a matsedlinum heldur var tad alltaf "french fried" og guidinn okkar til Maya Bay taladi med taelensk amesiskum hreim og sleppti alltaf s-inu i ordum eins og "guys", hann sagdi alltaf "how are you guy" og var ta ad tala vid 11 manna hopinn okkar !  Svo er tad tetta hlaturstist tegar tau vita ekki alveg hvernig tau eiga ad orda hlutina, ja og svo gaeti eg lengi talid.  Eg er viss um ad eg yrdi 150 ara ef eg byggi tarna, tar sem hlaturinn lengir lifid !  Buddha stytturnar voru lika oftar en ekki af skaelbrosandi, kampakatum, feitum kalli ur gulli med allskonar glingri.  Ekki furda ad tjodin se svona gladleg med tessa truarfyrirmynd. Sjonvarpsefnid samanstod eiginlega eingongu ad songvatattum i likingu vid idol og ta kitludu hlaturtaugarnar.  Eg vard stundum ad snua mer vid og bita fast saman til ad missa mig ekki ur hlatri yfir hinum ymsu atvikum, tvi ekki vildi eg nu vera donaleg. 
Annad sem vakti athygli mina var blessadur konungurinn.  Hann var ut um allt ! A risa plakotuma flugvellinum, stor gotuskilti i Bangkok, i ljosmyndabudum med eina Canon um halsinn, a veitingastodum, landamaerastodvum, peningunum, frimerkjum og sidast en ekki sist i bio!  Vid forum i bio i Bangkok og byrjadi syningin med halftima auglysingum, taer voru hver annarri kjanalegri/fyndnari og undir lokin var drepfyndin hradbankaauglysing med brjalad hressum Taelendingum og var eg rett ad jafna mig af hlatri tegar allur salurinn stendur upp og konungssongurinn byrjar ad oma um salinn og hann sjalfur birtist a skjanum asamt fjolskyldu sinni vid hin ymsu taekifaeri.  Kristin gerir eins og innfaedd og stendur grafkyrr (las tad i Lonely Planet), Harpa situr sem fastast og eg sest aftur til ad klara ad hlaegja tar sem tad er svo sannarlega ekki vid haefi tarna.  Eg rif svo Horpu upp og vid vottum honum virdingu okkar med tvi ad standa honum til heidurs naestu 3-4 minuturnar medan songurinn omar.  Allt endar tetta svo a gullnu setningunni "Long live the King "  Tetta totti mer alveg storkostlega merkilegt.  Lika tar sem vid vorum ekki i konunglega ballettnum eda a leid i operuna, heldur ad fara ad sja "Confession of a shopaholic".  Tad vardar vid log ad stiga a pening tvi hann prydir ta alla og frimerkin ma ekki sleikja tar sem tad er arfa donaskapur og ovirding ad sleikja bakhlid myndar af konungnum.  Merkilegt nokk !


Kongurinn i allri sinni dyrd

I tessu ferdalagi i heild hafa hlutir eins og klosettpappir og klosett almennt odlast allt adra merkingu fyrir okkur.  Klosett eru ekki bara klosett, tau eru i klossum.  Ef er klosettseta, pappir, rennandi vatn og sapa er tad first class og ta nytum vid okkur tad til hins ytrasta, sama to vid turfum ekkert ad pissa neitt endilega.  Klosettpappir var af skornum skammti baedi i Peru og S-austur Asiu og var eg farin ad standa sjalfa mig ad verki ad nappa serviettum af matsolustodum eda klosettrullu af hotelum, ef hun var ekki buin tegar vid vorum ad tjekka okkur ut gat eg omogulega latid hana fara til spillis, skellti henni i litla bakpokann og leid ekki a longu tar til not var fyrir hana.  A rutustodvum i Asiu voru yfirleitt holuklosett eda holett eins og eg kys ad kalla tad, tar sem tetta er ekki i likingu vid klosett.  Ta er eins gott ad vera laginn ad mida svo allt fari ekki ut um allt, standa ekki of aftarlega og krjupa nog, naestum eins og ad pissa uti, nema bara verra.  Holurnar eru lika i klossum, tvi tad er ekki naer alltaf haegt ad sturta nidur, nema ta med fotu og vatni sem er vid hlidina a.  Tad er lika virkilega ogirnilegt ad fara i flip flops inn a tessi holett, tar sem pissid er oftar en ekki ut um allt a golfinu og lyktin eftir tvi !  A hotelinu okkar i Peking eru sameiginlegu  klosettin holur !  Tad er mer lifsins omogulegt ad notast vid tetta og geri eg tad bara i brynustu neyd.  Hljop frekar upp 2 haedir a klosettid til Horpu og Elmars, ja eda bara held i mer !  En a tvi holletti var  to haegt ad sturta nidur og tad var pappir. 


Her sjaid tid holettid a hostelinu i Peking

En svona laerir madur ad meta litlu og sjalfsogdu hlutina sem madur hefur heima, tegar madur ferdast a framandi lodir.  Eg get ekki bedid eftir glansandi hreina og fina Gustavsberginu tegar eg kem heim.  Nuna erum vid reyndar stodd i Japan tar sem klosettin eru faranlega taeknileg, setan er heit og tad er fjarstyring vid hlidina a tar sem vid getum valid ad fa sma skvettu upp i rassinn til ad hreinsa almennilega, setja "flushing toilet sound " ef madur vill fela einhver oskemmtileg hljod og svo framvegis.

Eigid godar stundir !

Birta

Allt tad fina fra KinaFarfuglar

Godir halsar !

Eyddum tima okkar i Peking ad mestu leiti i afsloppun og taegilegheit. Okkur leid meira eins og vid vaerum i nordur Russlandi en nokkurn timan i 20 milljona hofudborg Kina.   Allir kappklaeddir, graar mursteinabyggingar, rafmagnslinurnar ut um allt, kaupmadurinn a horninu, gamlir kallar i steinaspilum ut a gotu og svo framvegis.  Eftir ad hafa eytt blodugum peningum i leigubila fyrstu dagana akvadum vid ad fara ad laera a metro kerfid.  Vorum einsog saudir med lonely planet opna og gatum ekki med nokkru moti skilid upp ne nidur i tvi tar sem allt var a kinversku.  Spurdum einn mann um hjalp og hann babbladi bara vid okkur a kinversku og skodudu alltaf Hong Kong metrokerfid tar sem tad var med kinverskum stofum og eftir sma stund voru svona 30 kallar komnir i kringum okkur, allir bendandi i sitt hvora attina og margir bara tarna af einskaerri forvitni, hlupu ad okkur langar leidir ad hjalpa glokollunum fra Islandi.  Eftir tessar handabendingar lobbudum vid i kolvitlausa att og endudum a ad borga morfjar i leigubil ad Olympiuleikvangnum og forum tar inn.  Okkur langadi ad skoda sundhollina lika en tetta var allt svo mikid peningaplokk ad vid forum bara inn i olympiuhollina tar sem opnunarhatidin og allt var.  Einnig langadi okkur ad skoda handboltahollina tar sem blussandi tjodarstolt raedur oft for i tessari ferd, en tad var ekki i bodi.  Vorum sidan eins og Palli var einn i heiminum a olympiumetrostodinni, heldum ad tad vaeri ekki haegt i Kina, allt slokkt og ekki hraeda a ferli.  Endudum daginn a silkimarkadnum, sem er svona fake varningamarkadur, efnaparadis fyrir Betu,  otolandi solufolk, virkilega hlop a eftir manni med spurningar eins og "do you need shoes" "how many t-shirts do you want?" og svo framvegis, samt haegt ad gera reifarakaup tarna ef madur vildi. 
Kina, Peking i okkar tilviki er mjog erfitt ad ferdast i tar sem ensku kunnatta er litil sem engin og vid turftum alltaf ad hafa mida med kinverskum taknum ef vid tokum leigubil og teir skildu okkur yfirleitt ekki to vid vaerum ekki ad segja annad en internet eda mc donalds og tolinmaedina skorti oft.  Heyrdum lika ad tetta stafi oft af tvi ad leigubilstjorarnir kunni ekki ad lesa og tessvegna hjalpadi okkur ekki alltaf ad vera med midana a kinversku eda med kort, ta hafa teir skammast sin og losa sig vid okkur med tvi ad keyra i burtu og ekki gatum vid med nokkru moti borid tetta fram.  Tarna var i fyrsta skipti i ferdinni sem vid turftum virkilegaad hafa fyrir hlutum og en audvitad er tad markmidid med tvi ad ferdast hringinn i kringum heiminn, ad allt se ekki eins audvelt eda eins og i hladinu heima.
Tar sem vid erum 5 turfum ad taka 2 leigubila, vid aetludum ut ad borda annad kvoldid, skiptum okkur i tvo leigubila med kinverska adressu i hond og heldum ad vid vaerum nokkud orugg.  Hvorugur leigubilstjorinn fann veitingastadinn og var okkur hent ut a sitthvorum stadnum i mug og margmenni, tar sem fotboltaleikur var ad klarast a Workers stadium.  Birta og Elmar voru med einn midann og lobbudu i hringi og var bent ut um allt to tau hafi spurt logregluna, farid a upplysingamidstod og folk a gotunni.  Stelpurnar fundu stadinn nokkud fljott tar sem hann het Purple Haze og taer fylgdu fjolublaa ljosinu sem reyndist reyndar ekki vera sjalfur stadurinn en nalaegt.  Harpa var buin ad bua til hina verstu sogu ur tessu, med tarin i augunum og Birta og Elmar voru ad gefast upp a leitinni eftir um klukkutima radalaust labb og aetludu bara ad setjast inn a naesta stad og fa ser ad borda, sa Birta (fjolublaa) ljosid, dro Elmar yfir gotuna og ser stelpurnar og hopurinn sameinadist a ny.  Laerdum af tessu ad allir verda ad vita hvar teir eiga heima og vera med sima i hvorum hopnum, ad taka tvo leigubila er ekki svo audvelt i svona oskiljanlegu landi.
Fleira merkilegt vid Kina, her virdumst vid oft vera meira spennandi en keisarahallirnar, pondurnar, Mao sofnin, torgin og jafnvel Kinamurinn sjalfur.  Misjafnt hvernig folk for finlega i tad, sumir toku laumumyndir af okkur, adrir badu okkur ad sitja fyrir og enn adrir toku 10 minutna myndasession tar sem tau voldu ser sinn uppahalds islending til ad eiga mynd af ser med! Lenntum i nokkrum fjolskyldu albumum tennan daginn. Tetta totti okkur aegilega skemmtilegt, hofum ekki lennt i tessu adur!

Framhald i naesta bloggi tar sem tad er buid ad mistakast 4 sinnum ad birta tetta blogg sokum pirrandi nets a hostelinu..

Kvedja

Birta, Elisabet, Harpa, Elmar og Kristin

Taeland - Hong KongFarfuglar

Eftir Full Moon partyid akvadum vid ad framlengja dvolinni a Kog Phangan um einn dag og skella okkur i filasafari. Voknudum klukkan 7 um morguninn og komu tvaer konur ad saekja okkur a pick up sem het Handsome Sandwiches. Byrjudum a ad fylgjast med apa sem klifradi upp i palmatre og nadi i kokoshnetur og skelltum okkur sidan a filsbak. Lentum flest a frekar lotum filum sem aetludu ekki ad haggast ur sporunum nema Kristin og Birta sem voru a fil sem reyndi hvad hann gat ad troda ser fram ur hinum filunum sem gekk mis vel tar sem Kristin greyid klesstist utan i trein. Betu fill var sa latasti i hopnum og atti tad til ad taka ser langar matarpasur og at heilu trein. Einnig tok hann upp a tvi ad klora ser i rassinum med tvi ad nudda rassinum sinum upp vid treid tar til tad byrjadi ad bogna. Mjog skemmtilegt. Sidan var haldid upp ad fossi sem var reyndar ekkert vatn i. Lobbudum einnig ad utsynisstad tar sem vid gatum sed yfir alla eyjuna.

Sidan var keyrt hinu megin a eyjuna og farid ad snorkla i sjonum. Enginn snorkladi samt ad viti nema Elmar sem for eitthvert lengst uti. Betaog Birta gerdu sig liklega til ad skella ser ut i en syntu svo oskrandi strax i land aftur eftir ad hafa rekist a risastoran kuk a botninum sem reyndist sidan vera risastor svort saegbjuga! Taer voru tarna ut um allt, frekar ogedslegar.

Daginn eftir var sidan haldid til Koh Phi Phi sem er onnur eyja fyrir utan Taeland. Tar gistum vid eina nott og lenntum i helli helli rigningu, thrumum og eldingum! Leitudum okkur skjols a internetkaffi a medan tad myndadist 'a fyrir utan og rottur og kongulaer flutu nidur goturnar! Virkilega hraedileg sjon. Daginn eftir forum vid sidan i ferd til litillar eyju fyrir utan Koh Phi Phi Don og gistum tar a strondinni sem heitir Maya Bay (strondin tar sem myndin The Beach med Leonardi Dicaprio var tekin upp). Byrjudum a ad snorkla og fara a Kayak i kristaltaeru vatninu. Sidan var farid i land og strondin skodud. Sidan var fengid ser ad borda og sotradur bjor og sungid med gitarundirspili. Farastjorarnir voru heldur reyktir ef svo ma ad ordi komast og aetludu ad halda fyrir okkur aegilega flotta eldsyningu. Kveiktu i kulum sem hengu i kedju og byrjudu ad snua teim i allar attir en voru tad reyktir ad teir slou teim af og til i sjalfan sig og matti litlu muna ad teir kveiktu i ser. Vid stodum oll og grenjudum ur hlatri og bjuggum okkur undir ad turfa hlaupa med tha ut i sjo og slokkva i teim. Sidan var komid ad midnatur sundu i sjonum. Ekki gerdust allir svo djarfir, adeins Elmar, Harpa og Birta asamt einni saenskri stulku og einum thjodverja. Sidan var skellt ser i svefnpokann og sofid undir berum himni a strondinni. Komumst samt fljotlega ad tvi um kvoldid ad vid vaerum ekki ein a strondinni. Nei vid vorum heldur betur med gesti tar sem tad var allr morandi i ROTTUM!! Thaer attu tad til ad skjodast tvert yfir strondina og gramsa i pakpokunum okkar a medan vid lagum tarna og tordum ekki ad hreyfa okkur. Einig var fullt af krobbum a strondinni sem Harpa reyndar helt fyrst ad vaeru tarantulur og fekk vaegt modursykiskast!



Eftir tessa nott (sem var lengi ad lida hja sumum tar sem teir gatu ekki sofid dur) var haldid til baka aftur eftir stutta utsynissiglingu um eyjuna. Tha var haldid med skipi og rutu aftur til Bangkok eftir ad Elmar hafdi fengid ser tattoo. Tangad komum vid klukkan 5 um morguninn og heyrdum rutubilstjorann oskra ,,welcome to cambodia". Okkur bra heldur betur en komumst fljotelga ad tvi ad tetta var bara djokur:) Eftir ad hafa sidan loksins fundid okkur hostel var farid og sofid og skelltum vid okkur sidan i bio og skodudum 50 ara afmaelissyningu Barbie sem var mjog gaman:) (nema elmari fannst tad ekki). Daginn eftir skodudum vid sidan Wat Poh sem eru buddahof og saum einnig RISASTORAN budda!

Sidan eyddum vid restinni af deginum i ad skoda Koh Sam Road og Rauda hverfid i Bangkok. Sidan var brunad ut a flugvoll tar sem vid gistum og sidan var flogid eldsnemma um morguninn til Hong Kong tar sem vid stoppudum adeins i 2 daga. Tegar vid lentum a flugvellinum kom strax madur til okkar og byrjadi ad bjoda okkur taxa. Okkur fannst eitthvad skritid ad hann var ekki med nein skirteini eda neitt heldur rollti bara um flugvollinn og let litid fyrir ser fara. Eftir ad hafa fallist a leigubil med honum gengum vid med honum ut. Hann labbadi tho nokkud a undan okkur og var tvi ekki strax var vid tegar logregluthjonn kom til okkar og spurdi hvert vid vaerum ad fara. Vid sogdumst vera ad fara i leigubil med tessum manni og bentum i att til hans en saum tha ad hann var horfinn. Tha sagdi logreglumadurinn okkur ad tetta vaeri 'ologlegir leigubilar og vid maettum ekki taka tha. okkur bra heldur vid tetta og saum manninn sem baud okkur taxann fela sig a bak vid einhverja sulu medan vid toludum vid logguna.

Tegar vid komum loks a hostelid okkar (med loglega leigubilnum okkar) maettu okkur ansi furduleg adkoma. Byrjudum a ad labba inni halfgerdan markad inn i storri byggingu tar sem vid tokum pinulitla lyftu upp a 13 haed. Tar var buid ad krota a gr'aan steypuvegg med tusspenna Ashoka Deluxe Hostel. Tar lobbudum vid i gegnum tvottahus og inni pinulitid herbergi sem var ,,Reception". Tar fengum vid lykla ad herberginu ef svo er haegt ad kalla tad. Tetta voru heldur eins og skapar. Herbergid 'asamt klosetti og sturtu voru ekki miki meira en 4 fermetrar. Ekkert golfplass og rumin minntu helst a spitalarum. Einnig voru graen mikka mus gardinur og leid okkur eins og vid vaerum stodd a barnageddeild. En Hong Kong var aedisleg. Byrjudum a ad fara i svokallad Tram sem er litil lest sem for med okkur upp a toppinn a haedinni sem yfirgnaefir Hong kong. Tar var tvilikt flott utsyni yfir borgina. Bordudm svo a veitingastad sem het Bubba Gump og var Forrest Gump thema stadur.

Daginn eftir var sidan skellt ser i Disneyland tar sem vid eyddum mest ollum deginum. Tar hittum vid Mikka mus og felaga og skelltum okkur i russibana og thrividdarshow og marg meira skemmtilegt. Um kvoldid horfdum vid sidan a lasershow sem er a hverju kvoldi klukkan 8 og stendur yfir i 10 min. Mjog skemmtielgt ad horfa a tad og oll ljosin a byggungum og skyjakljufrunum. Sidan var fengid ser ad borda og rollt um baeinn. Daginn eftir var sidan haldid til Peking tar sem tok vid skitakuldi. Ja ekki nema 12 gradur her og gera strandkjolarnir og stuttbuxnar litid gagn. Hugsum mikid til dunulpunnar heima nuna!


En komum med blogg fra Kina seinna, segjum tetta gott i bili!

Kvedja ur skitakulda

Harpa, Elmar, Kristin, Elisabet og Birta!

AsiaFarfuglar

Vid flugum til Hoh Chi Minh city i Vietnam fra Bangkok. Okkur var dreift um flugvelina og Birta lenti hlidina midaldra Vietnama sem nadi henni rett upp ad brjostum. Hann var heppinn ad hafa Birtu tarna vid hlidina ser tar sem hann lenti i vandraedum med ad na i handfarangurinn sinn upp i farangursholfid vegna haedar sinnar, pikkadi vandraedalegur i Birtu og bad hana um ad retta ser hann. Vinir hans sem voru ekki haerri stodu allir hja og hlogu og rodnudu og Birta var ein tarna aftast og atti erfitt med sig. Tegar vid komum utur velinni toku a moti okkur skillti i anda kommunismans og alvarlegir tollverdir i mosagraenum einkennisbuningum sem voru ekki sattir vid bladrid i Birtu sem var ennta ad hlaeja af nyju asisku vinum sinum. Gaetum hlegid allan daginn af Asiu enskunni og serstokum posum sem eru mjog vinsaelar medal Asiubua og fleiru.


Okkur fannst tetta mjog kommunistaleg auglysing

Stoppudum tvo daga i Hoh Chi Minh city. Skodudum stridsminjasafnid, nedanjardar gong sem voru notud i stridinu af vietnomskum uppreisnarmonnum sem voru ad berjast a moti Bandarikjamonnum, letum sauma a okkur kjola og roltum um borgina. Okkur finnst umferdin herna mjog merkileg tar sem bilar eru i miklum minnihluta en vespur eru adalmalid, minnir daldid a maurahrugu tar sem vespurnar eru ut um allt, upp a gangstettum og bidskylda er ekki i havegum hofd! Heilu fjolskyldurnar sem ferdast saman a einni vespu og heimilishundurinn kannski med i for lika.



Tokum naeturrutu til Nah Trang. Vorum mjog spennt til ad byrja med tar sem saetin voru likari rumi, tveggja haeda kojur. Lagum i einni flatsaeng aftast i rutunni og fannst tetta geggjad. Tad var samt fljott ad breytast tegar vid logdum af stad tar sem loftraestingin for i verkfall med teim afleidingum ad vid hefdum ekki getad verid klistradari to vid hefdum legid i siropslegi og flautan var notud adeins of mikid fyrir okkar smekk tannig vid gatum ekkert sofid. Erum buin ad komast ad tvi ad 10 tima rutuferd er allt annad her i Asiu en i t.d. Peru tar sem samgongurnar eru miklu betri tar. Hotelid okkar i Nah Trang var mjog flott. Byrjudum a tvi ad panta okkur morgunverd i rumid sem var innifalid og svafum halfan daginn i yndislegri loftkaelingunni. Ymslegt gert i Nah Trang. Medal annars tokum vid klaf yfir a eyju tar sem var skemmtigardur og falleg strond, skodudum fossa sem heita Yang Bay, forum a krokodilabyli og horfdum a svinavedhlaup sem er ein skemmtilegasta itrott sem vid hofum sed!

Naest tok vid vika af stanslausu ferdalagi tar sem timi okkar i Vietnam og Kambodiu var af skornum skammti. Tokum naeturrutu til Hoh Chi Minh city, sem var milu skarri en su sidasta. Tokum svo rutu til baes i Vietnam sem heitir Chau Doc, sa dagur var met i ad sja engan hvitan mann, saum engan fra tvi ad vid logdum af stad fra Hoh Chi Minh tangad til vid komum til Chau Doc, fannst tetta mjog merkilegt! Gistum eina nott i Chau Doc og tokum svo bat eldsnemma upp Mekong ana sem liggur upp i Kambodiu. Gistum eina nott i Phnom Penh, hofudborg Kambodiu. Leigdum okkur tuk-tuk, sem er vespa med vagni aftan i, i halfan dag. Hann for med okkur a alla helstu stadina i Phnom Penh, s.s. Killing fields sem er stadur tar sem folk var pyntad og myrt a dogum Pol Pots i tjodarmordunum i Kambodiu a arunum 1975-1979. Frekar skelfilegt ad skoda tetta, buid ad byggja turn fylltan af hauskupum fornarlambanna og fjoldagrafirnar saust ennta og meira ad segja fot af fornarlombunum lagu ennta half upp ur moldinni sem gerdi tetta allt miklu raunverulegra.
Tokum rutu til Siem Reap tar sem Angkor Wat er. Hittum tvo tuk tuk bilstjora um leid og vid komum sem budu okkur ad fara med okkur i Angkor Wat daginn eftir. Teir vildu endilega fara med okkur ad sja solarupprasina kl 5 um morguninn. Vorum daldid treg vid tad fyrst, tar sem ad vakna snemma er ekki beint i uppahaldi hja okkur en akvadum to ad neyda okkur i tad. Tad var svo sannarlega tess virdi! Komum i svarta myrkri, settumst hja vatni fyrir framan Angkor Wat og bidum tess ad sja eitthvad. Angkor kom svo smam saman i ljos, mjog fallegt. Okkur bra mjog mikid vid ad sja hvad var mikid af folki tarna tar sem vid hofdum haldid ad tad vaeru kannski svona 30 manns tarna med okkur en voru svona 150 manns! Skodudum svo fleiri hof tarna i kring, t.a.m hofid sem var notad i Tomb Rider myndinni, Jungle Temple.
birtakristin 044 by farfuglar1.

Forum aftur a hotelid um hadegi og logdum okkur. Vorum alveg buin a tvi tar sem vid svafum ekkert nottina adur vegna brjaladra hunda i naesta husi vid hotelid sem spangoludu kvalarfullt eins og vaeri verid ad pynta ta, skelfilegt hljod! Restin af timanum i Siem Reap for i ad skoda borgina. Birta og Beta hittu Islendingana Sillu og Dada sem eru i Asiureisu og teim fannst aegilega gaman ad tala islensku og skiptast a ferdasogum. Tokum svo rutu til Bangkok tar sem vid gistum a golfinu a flugvellinum, onnur nottin okkar tar, erum ordin heimakaer a tessum flugvelli. Flugum svo morguninn eftir til Surat Thani og tokum ferju tadan yfir a Koh Phangan eyjuna tar sem vid erum nuna! Erum ekki buin ad gera neitt annad her en ad liggja i solbadi og djamma tar sem tetta er party eyja og vid attum tad skilid ad hvila okkur eftir mikid ferdalag! Forum i Full moon party i gaer. Hittum Islendinga fyrir tilviljun. Vorum buin ad mala islenska fanann a bakid a okkur, sem virkadi vel tar sem vid heyrdum allt i einu Island hropad a eftir okkur! Tvilik gledi ad hitta adra Islendinga, vorum himinlifandi! Skemmtum okkur konunglega i partyinu, stodst algjorlega undir vaentingum. Komum ekki heim fyrr en solin var ad koma upp, annad skiptid sem vid sjaum solarupprasina i Asiu, nokkud gott!
Verdum her a eyjunni i 2 naetur i vidbot og aetlum svo ad reyna ad fara til Nordur-Taealands, haldid afram ad fylgjast med okkur :)



Alveg med asiuposuna a hreinu !

Kvedja
Kristin, Birta, Harpa, Elmar og Elisabet

Airlie beach - Hoh chi minh cityFarfuglar

Jaeja! Fra Mooloolaba tok vid 17 tima rutuferd til Airlie beach tar sem vid vorum bunar ad boka siglingu um koralrifin og Whitsundays Islands. Tokum okkur 2 daga i ad na okkur eftir rutuferdina, sloppudum af i einhverskonar loni sem er buid ad bua til tarna i Airlie beach og reyndum ad naela okkur i adeins meiri lit. Agaet tilbreyting fra sjonum. Tridja daginn voknudum vid svo eldsnemma og roltum nidur a hofn. Komum auga a batinn okkar sem het Siska og var einn af minnstu batunum!


Sigldum af stad og sloppudum af i solbadi uppa dekki, ljuft lif! Svo var komid ad tvi ad snorkla! Klaeddum okkur i blautgallana, heilgallar sem attu ad verja okkur fyrir marglittum sem er vist mikid af a tessu svaedi. Stukkum uti og byrjudum ad snorkla. Tad fyrsta sem vid saum var risastor fiskur og stod ekki ollum a sama um tad og fengu far med hradbat alveg ad koralnum en adrir syntu! Svo hofst leitin ad Nemo! en hann let ekki sja sig fyrr en i naesta stoppi. Olyslanlegt hversu falleg veroldin er tarna nidri, allt annar heimur, eins og ad vera staddur inni i risastoru fiskaburi med ollum regnbogans litum. Dagurinn for svo i ad liggja i solbadi og snorkla.



Um kvoldid var farid i sturtu og bordad ljuffengan mat uppa dekki og sotradur bjor og horft uppi stjornubjartan himininn. Hofum aldrei a aevinni sed jafn magntrunginn himinn, ekkert ljos sem trufladi svo tusundir stjarna blostu vid okkur, m.a. karlsvagninn a hvolfi midad vid Island og vetrarbrautina. Attum mjog romantiska stund med hvor annarri! Birta og Elisabet gatu ekki slitid sig fra romantiska andrumsloftinu og akvadu ad gista undir berum himni og brosti maninn vid teim(bokstaflega tvi hann sneri tannig)!
Naesta dag var svo siglt i land a eyju rett hja tar sem vid nutum utsynisins og lagum a gullfallegri strond tar sem sandurinn var svo mjukur ad okkur leid eins og vid vaerum ad labba a kartoflumjoli! Eftir tad la leidin svo aftur til Airlie beach.



Kiktum adeins ut um kvoldid a Airlie beach og hittum eins og adur mikid af Nordurlandabuum en tetta er greinilega vinsaell stadur medal teirra, okkur leid stundum eins og vid vaerum a Jotlandi frekar en i Astraliu tar sem nordurlandamal heyrdust allsstadar. Skammarlegt samt hvad Sviar vita litid um Island midad vid t.d. Ny Sjalendinga og Astrali! Eftir gott stopp a Airlie beach tokum vid svo rutu upp til Cairns tar sem litid annad var gert en ad hlada batteriin eftir litinn svefn sidustu daga.
Flugum svo tadan til Sydney og fra Sydney til Bangkok, Taelandi tar sem vid lentum um midnaetti! Vegna sma misskilnings milli am og pm tima vorum vid bunar ad akveda ad bida a flugvellinum eftir Elmari sem var a leid til okkar fra London. Heldum ad hann aetti ad lenda 4 um nottina og vorum bunar ad koma okkur vel fyrir a bekkjum vid toskubandid, saekja svefngrimurnar, eyrnatappa og sarong tegar vid uppgotvudum ad hann aetti ad lenda 4 pm, eda daginn eftir! Svekkjandi! En akvadum nu samt ad gera bara gott ur tessu og spara okkur hostelnott og gerdum okkur heimakaerar a flugvellinum, nadum agaetis svefni bara! Voknudum ekki fyrr en 7 morguninn eftir vid tad ad Honolulu buar voru ad saekja toskurnar sinar og horfdu undrandi a vestraenu bakpokaferdalangana sem voru svo sannarlega bunir ad breida ur ser, eins og okkur einum er lagid! Skiptir ekki mali hvar i heiminum tad er!
Fyrstu kynni okkar af Bangkok eru, laeti, hiti, mengun, rusl og ekki svo god lykt! En vid hofum ennta sed litid af henni tar sem vid stoppudum adeins i einn dag, rett til ad fa Vietnamskt visa og bida eftir Elmari adur en vid heldum til Hoh chi minh city i Vietnam tar sem vid erum nuna. Forum i kvold med naeturrutu til Nha Trang sem er strandbaer her i Vietnam.
Gaman ad sja athugasemdirnar og ad tid fylgist vel med okkur. Minnum a myndasiduna
http://www.flickr.com/photos/farfuglar2

Aetlum ad hoppa ad na i sersaumudu fotin okkar til klaedskerans ;)

Kvedja

Kristin, Birta, Harpa, Elisabet og Elmar!

Byron Bay og MooloolabaFarfuglar

Margt hefur a daga okkar drifid fra seinasta bloggi og vid erum afskaplega gladar ad sja svona margar athugasemdir. (krefst tess ad fa fra Baru og Leif a tetta blog)
Fra Colangatta a Gold coast var ferdinni heitid a Surfers paradise ad hitta Adalheidi Kristinu, en hun aetlar ad vera busett herna nidri naestu 3 manudina. Tegar vid komum tangad vorum vid i midjum klidum vid ad boka okkur a brimbretta namskeid hja Mojo surf (eg segi i midjum klidum tar sem tetta gekk sko alls ekki afalla laust fyrir sig, Harpa hringdi cirka 700 simtol og tegar vid komum a stadinn vissu allir hverjar vid vorum t.e. islensku stelpurnar sem bokudu a sidustu stundu svo tad var tvlkt bras ad redda gistingu fyrir okkur.)  Surfnamskeidid var i litlum bae rett hja Brisbane, baerinn heitir Byron bay og er kruttlegur gamall hippabaer, tad var augljost ad nokkrir gamlir hippar hofdu dagad uppi i baenum og vissu ekki alveg i hvada heimi teir voru staddir. Adalheidur akvad ad gripa taekifaerid og skella ser med okkur og vid heldum spenntar af stad.
Hittum Adalheidi Kristinu, sem byr i Surfers Paradise by Farfuglar2009.

Tegar vid svo komum til byron sidla kvolds akvadum vid ad labba a hostelid tott tad vaeri nu svoltid ut ur leid ,erum ad minu mati bunar ad vera alltof flottar a tvi og nyta okkur taxa vid hvert taekifaeri, eg heimtadi ad labba, nota tessa bakpoka eitthvad. Logdum ad stad med leidbeiningar i smsi fra Mojo surf asamt tvi ad Harpa var fullviss fra simtolunum fyrr um daginn ad hostelid her eitthvad Beach house. Vid attum s.s ad maeta a svaedid og tar sem vid vorum svo seinar a ferd atti lykillinn ad vera inni kofa 7. Eftir um klukkutima labb, sem ad sumum fannst reyndar vera eins og 7 tima labb maettum vid a svaedid, Belongil beach house, tetta var klarlega okkar, vid stormudum upp ad kofa 7 og byrjudum ad hamast a hurdarhuninum, tad gekk ekki tannig ad vid dingludum neydarbjollunni og hann kannadist bara alls ekkert vid bokunina okkar, vid vorum farnar ad renn svitna og sja fyrir okkur nott uti a bekk einhversstadar. Tegar vid forum svo ad lesa smsid okkar betur ta stod bara alls ekkert beach house neitt og tetta var nu bara naesta hostel hlidina a og kofi 7 beid okkar tar.

Jaeja vid voknudum eldsnemma daginn eftir og klaeddum okkur i surf gellu gallann. Vid vorum sottar klukkan 8, en aftur voru islensku stelpurnar med eitthvad vesen, letum bida eftir okkur tvi tad reyndist vera hid mesta erfidi ad laesa tessum kofa okkar.
Kennarinn het Whapu og var surf utgafan af ljoshaerda kallinum ur dumb and dumber. Vid vorum 8 i hopnum og oll ad fara ad prufa brimbretti i fyrsta skiptid. Tad fyrsta sem kennarinn gerdi var ad retta okkur blad til ad skrifa undir, tetta blad innihelt vidvaranir, eda blakaldar stadreyndir um hvad gaeti gerst fyrir okkur a tessu namskeidi. Tar a medal: tid getid daid, tid getid verid bitnar af hakarli, ekki tad ad vid hefdum ekki verid med naegan stress hnut i maganum!!!


Namskeidid byrjadi a utskyringu a vedur og loft thrysti svaedum jardar og vorum vid alveg gjorsamlega tyndar hvad i andskotanum tad kaemi tessu vid. Svo var til ad stressa okkur adeins meira talad adeins um tad ad tad latist margir a Astrolskum strondum og vorum vid varadar vid oldunum, sem geta virkad eins og kviksyndi....uff stressid i hamarki!
Vid med brettin by farfuglar1.
Svo byrjadi ballid, Allir fengu blautgalla bol, og eitt stykki brimbretti. En tad er sko alls ekki eins audvelt og tad litur ut ad bera tessi brimbretti. Eftir upphitun, teyjur og hlaup i sandinum byrjudum vid a ad laera hvernig brettid aetti ad snua og laerdum hvernig aetti nu ad standa a tessu. Skrefin voru 4. Byrjudum a ad roa, svo upp og snua. Tetta var aeft a strondinni i orskamma stund og svo bara beint ut i sjoinn, ja nu var komid ad tvi ad surfa!
Surfid gekk bara agaetlega, en mesta erfidi var ad halda a tessu blessada bretti og vorum vid fljotar ad laera ad tad ma alls ekki snua brettinu thvert a oldurnar tvi ta kilir brettid mann nidur a bolakaf eins og gerdis of oft.
Ollum tokst okkur ad standa eitthvad orlitid.
Eftir surfid, eins og tad hafi ekki verid nog pul akvadum vid ad fara i hjolatur um baeinn. Vid theyttumst um baeinn, hjoludum m.a. upp ad adal kennimerki byron, sem er viti uppa haed ofan vid baeinn. Hjolaturin vardi cirka 4 tima og agiskadur km fjoldi 20 km. Um kvoldid bordudum vid dyrindis pizzur og pasta i bodi Mojo surf og skodudum naeturlifid, trubador og surf gaejar og gellur. Hofum komist ad teirri nidurstodu eftir visindalega rannskokn a naeturlifinu i landinu herna hinum megin a hnettinu, ad sumarsmellirnir okkar fra tvi i fyrra eru teirra smellir nuna.

Vid og vitinn by farfuglar1.
Daginn eftir var  surf dagur nr 2 og var hann ad mestu leyti eins og sa fyrri. Aftur lentum vid i vandraedum med ad rata, en tad er alika heimskulegt og ad villast a Seydisfirdi (eg segi Seydisfjordur aftvi ad stemminginn og skemmtilega andrumsloftid herna minnti okkur a Seydis, litill arti bae.) Nema tennan dag fengum vid 3 surfkennara og staerri hop. Kennararnir voru yngri og myndarlegri en fyrri daginn. Einn var tvifari Idol stjornunnar Clay Aiken og einn var of saetur til ad vera surf kennari, allt for i kerfi og engin leid ad standa a brettinu i svoleidis adstaedum. Flestum gekk nu heldur betur ad standa seinni daginn, en vantar okkur to klarlega meiri aefingu.Um kvoldid heldum vid til baka til Surfers paradise ( tar sem Adalheidur byr). Tar skelltum vid okkur med hostelinu a Club cravl, en tad er klubbarolt med sirka 100 bakpokaferdalongum af helstu hostelunum. Tad var hin besta skemmtun.
IMG_4242 by farfuglar1.
Kristin og Harpa foru fyrr heim, spenntar fyrir ad leggjast i tvibreida hjonarumid a hostelinu, treyttar eftir 2 daga brimbretta namskeid, hjolatur, ferdalag og club cravl. Kristin var buin ad koma ser vel fyrir i ruminu goda og Harpa stod hlidina ruminu tilbuin ad leggjast upp i, tegar hun kemur augu a a eina ta ogedslegustu og vidbjodlegustu kongulo sem hun hefur augum litid. Harpa rak upp vein og hljop ut og Kristin sem var naestum sofnud, hrokk upp, leit hana augum og stokk upp ur ruminu til Horpu. Framm a gangi skaelandi taugahrugur i fadmlogum eyddu taer naesta klukkutimanum ad bida eftir ad hjalp. A timabili ihugudu taer ad leita skjols a rutustodinni eda taka neastu flugvel heim! Hjalpin barst to ad lokum, 2 starfsmenn af hostelinu maettu a svadid, fjarlaegdu skrymslid og hughreystu taer fraenkur.
Konguloin ogurlega by Farfuglar2009.
Daginn eftir var ferdinni heitid til Mooloolaba a Sunshine coast og tar erum vid enn. Tar tok vid okkur rigning og dagar i ad plana naestu daga, en tad var planid ad fara i safari a Fraser island, staerstu sandeyju i heiminum og svo sliglingu a Whitsunday islands og skoda tar koral rifin. Eftir morg simtol og email, nadi hann Justin a ferdaskrifstofunni ad kludra tessu ollu fyrir okkur!:( Var buin ad segja allt vaeri i besta lagi. Eftir sma sjalfsvorkun og omogulegheit akvadum vid ad taka okkur saman og redda malunum! 2 mjog einfoldum simtolum seinna vorum vid bunar ad boka okkur i siglingu a Whitsundays og rutur alla leid upp li Cairns.
Vid turftum tvi midur ad forna Fraser island safarinu og erum bunar ad eyda mikilvaegum tima i hangs her i Mooloolaba. Ekki sattar med Justin!

Her i Mooloolaba er litid haegt ad gera, en adalmalid her er Astralia zoo, en tad er dyragardur sem hinn heimsfraegi Steve Irwin heitinn, the Crocodile hunter og famelia raku. Tar var ad sjalfsogu adalmalid ad sja Kengurur og Koalabirni. Hapunkturinn fannst okkur to ad sja Tasmaniu skolla, en hver man ekki eftir honum Tasa. Vard to fyrir orlitlum vonbrigdum med ad sja hann ekki snuast i hringi eins og hvirfilbilur.
A Valentinusardaginn eldudum vid okkur romantiskan kvoldverd og heldum ut med folki af hostelinu. Tad var nu bara eins og ad vera a balli heima i Valaskjalf, hljomsveit og smellir eins og Summer of 69.

klappa kenguru by farfuglar1.

Vorum ad setja nokkrar myndir inna http://www.flickr.com/photos/farfuglar2

Kvedja

Elisabet, Kristin, Harpa og Birta

SydneyFarfuglar

Vid lentum i Sydney eftir 16 tima flug, 2 millilendingar, dag i Santiago (Chile) og med 18 tima mun a Chileskum og Astrolskum tima. Logdum af stad um kvoldid 3 februar, misstum af 4 februar og lentum um morguninn 5.feb.   Stoppudum i nokkra klukkutima i Santiago og skodudum borgina, duttum i Vintage paradis, hvern hefdi grunad ad Santiago vaeri drottning vintage heimsins.  Vid nadum ad versla slatta fyrir adeins um 1000 ISK, t.d. kostadi bleiki kjollinn sem Harpa for i i operuna adeins 800 kr. 
Fyrsta daginn i Sydney notudum vid i ad skoda hid margromada Operuhus og akvadum ad skella okkur a tofraflautuna um kvoldid. Bakpokaferdalangana vantadi Operudress og fengu flip flops ad fjuka tad kvoldid og Birta og Elisabet keyptu sko til ad vera husum haefar. Okkur kitlar i puttana ad fara ad versla, flott tiskan herna, mitt sumar, frabaerir litir og nog urval.  Harpa klaradi verslunarkvotann sinn med tvi ad smella ser a 3 kjola i einni budinni okkur hinum til mikillar gremju en henni til varnar fengu tvaer flikur ad fjuka, til ad hafa plass fyrir nyju kjolunum. 
A fostudeginum tokum vid bat a Darling Harbour, tar sem Sydney Aquarium (Saedyrasafn) er og tar kenndi ymissa grasa.  Nemo og felagar voru i koralrifjaburinu, krokodilar voru a sinum stad og sidast en ekki sist hakarlar.  Lobbudum inn i nedansjavar glergong tar sem teir syntu spakir fyrir ofan okkur, heldur hrikalegt.  Um kvoldid kiktum vid a naeturlif Sydney, vorum i gongufaeri fra helstu stodunum.  Tar fengum vid sma tilbreytingu fra latinotonlistinni og heyrdum evropska tonlist aftur. 



A laugardaginn forum vid i 305 m haan turn, Sydney Tower, tar sem vid vorum med 360 gradu utsyni yfir borgina, saum m.a. Olympiuleikvanginn, Operuhusid og margt fleira.  Seinni partinn flugum vid til Gold Coast, a austurstrond Astraliu.  Gistum tvaer naetur a Coolangatta strondinni, nyttum timann tar i algjora afsloppun og  jafna okkur a timamismuninum.  Maettum eldspraekar a strondina morguninn eftir, gull falleg og famenn strond.  Eftir nokkra umhugsun og vangaveltur akvadum vid ad gerast djarfar og leggjast topplausar i solbad, til ad na almennilegum heil lit.  Sneru nokkrir sig naestum ur halslid og adrir hrosudu og vakti tad okkur til umhugsunar um hvort tetta vaeri ekki algeng sjon a strondum Astraliu, tar sem tetta var greinilega ekki tiskan i Braseliu, tar var tad meira rassinn uti.  Eftir nokkra stund spyr strakur Betu hvad vid seum gamlar og baetir sidan vid ad hann haldi ad tad se ologlegt ad liggja topplaus a strondinni.  Tar med vorum vid ordnar "logbrjotar" og heiltaninu lauk, sem var kannski bara fyrir bestu tar sem tan graedgin var einum of mikil og Birta og Harpa voru einsog Homeblest kex i lok dagsins (gleymdum ad snua okkur).

Okkur lidur rosalega vel her i Astraliu, folkid er almennt rosalega vingjarnlegt og til i ad hjalpa okkur og leidbeina ef vid turfum,  meira ad segja sjalfsalarnir tala vingjarnlega vid mann.  Tad kom okkur a ovart hversu nutimaleg Sydney er, allar byggingar mjog nylegar og allt mjog altjodlegt.  Vinstri umferdin kom okkur lika spanskt fyrir sjonir, okkur finnst alltaf eins og enginn se ad keyra bilinn eda ta sa sem situr i fartegasaetinu (bilstjorasaetinu hja okkur).  Vid nytum okkur tad lika ospart ad hafa klosett med klosettsetum og klosettpappir, mega borda nanast hvad sem er, drekka vatnid ur krananum, tala ensku og skilja alla, allt vodalega heimilislegt og otrulegt til tess ad hugsa ad vid erum hinum megin a hnettinum, en samt er allt svo likt. 
birta 129 by you.

Birta, Harpa, Elisabet og Kristin

Skellum inn bloggi fljotlega fra Surfers Paradise og Byron Bay, forum a brimbrettanamskeid og fleira skemmtilegt ! Settum inn yfir 200 myndir baedi a www.flickr.com/photos/farfuglar og www.flickr.com/photos/farfuglar2 en taer eru ekki alveg i timarod.

Ilha GrandeFarfuglar

Vid logdum af stad til Ilha Grande manudaginn 26.januar.  Sjoferdin var vaegast sagt skrautleg, to vid seum faerar i flestan sjo ta var tetta heldur taept a timabili, miklar oldur og svo a midri leid biladi velin og baturinn var stopp i um 30min medan teir skiptu um reim, urdum vid sma sjoveikar a tvi timabili en um leid og vid komumst af stad var stutt i afangastad.  Ilha Grande er algjor paradisareyja !  Tar er ekki malbik, engir bilar, ekkert internet a hostelinu, litill supermarkadur med vondri lykt, raki utum allt, gullfallegar strendur og sjor, graena lonid og svo margt meria dasamlegt !  Vid vorum tar fram a fimmtudag og forum m.a. i siglingu medfram eyjunni, en adallega vorum vid a strondinni ad njota lifsins !  Birta atti svo afmaeli a fimmtudeginum og fannst henni mikid upplifelsi ad vakna i 30 stiga hita og sol, klaeda sig i bikini og fara a strondina a afmaelisdaginn, meira von snjobyl og lodnuvertid, hehe. Yndisleg upplifun !

Ferdin til Rio gekk vel fyrir sig og forum vid fint ut ad borda i tilefni dagsins, afmaelisdjammid var svo tekid a laugardeginum.  Seinustu dagana i Rio nyttum vid m.a. i ad skoda Jesu upp a nytt og saum hann i bjortu ad tessu sinni ! Vid forum lika a strondina og i Favelu tur, sem er eitt tad eftirminnilegasta ur Braseliu !  Otrulegt ad sja andstaedurnar maetast, 200.000 manna fataekrahverfi beint a moti 5 stjornu Sheraton hoteli med einkastrond.  Turinn byrjadi a ferd upp i motorhjolataxa og heldum vid ad vid myndum lata lifid, forum tarna lengst upp og motorhjolataxamennirnir toku fram ur rutum og svinudu fyrir adra motorhjolataxa og fleira skemmtilegt.  I favelunni lobbudum vid um trongar gotur, saum straka med skammbyssu i rassvasanum (tad voru teir sem voru ad verja faveluna og klikuna sina, einskonar loggur), rusl ut um allt en jafnframt gull falleg born og innfaedda.  Virkilega ahugavert allt saman !


Tetta er staersta favela i Sudur ameriku.

Annars erum vid komnar til Sydney og erum ad njota lifsins !  Forum ad sja tofraflautuna i Operuhusinu i gaer, tad var aedislegt.  Hreint ut sagt yndislegt lif !  Ferdinni er heitid til Gold Coast a austurstornd Astraliu a morgun og svo holdum vid afram upp til Cairns, latum vita af okkur a leidinni.

Kvedjur ur solinni


Birta, Harpa, Elisabet og Kristin (a leid a Tofraflautuna i gaer) !

Rio Rio RioFarfuglar

Jaeja thá er loksins komid ad tvi ad vid bloggum. Búnar ad fá mikid ad kvortunum ad heiman vegna bloggleysis. Vid lofum ad reyna ad standa okkur i blogginu og vera duglegri. En thad hefur aldeilis margt sked sídan tid lásud frá okkur seinast. Hér er thad sem hefur drifid á daga okkar sídastlidna viku.

Fostudagur: Byrjudum daginn á tví ad ákveda naestu daga ferdarinnar sem endadi med tvi ad vid bókudum hostel og farmida til Ilha Grande. Seinna sama dag var ferdinni heitid ad Jesú styttunni fraegu. Vorum virkilegar spenntar en okkur til mikillar vonsku var mjog lágskyjad tennan dag og skyggnid samasem ekkert! Héldum arkandi upp ad styttunni i von um ad thad myndi létta til en svo var ekki. Jesú faldi sig á bak vid skýjahuluna og var lítid ad láta ljós sitt skýna. Auk tess áttum vid ad geta séd yfir nánast alla Rio en vid sáum ekkert nema hvitan skýja vegg. Ekki svo sáttar med thad... erum ad velta tvi fyrir okkur ad gera okkur adra ferd tarna upp ef tími gefst.


Um kvoldid var sídaan komid sér fyrir a hostelbarnum eftir mjog svo mislukkada tilraun i eldhúsinu tar sem reynt var ad baka franskar á ponnu med smjori. Tvi var sidan skolad nidur med jógurti... en seinna um kvoldid var haldid i Lapa street party sem var mjog skemmtileg upplifun. Lapa er djammhverfid í Rio og fyllist á hverju kvoldi og thá adalega um helgar en thá eru allt ad 20.000 mann á svo kolludu Lapa street party. Partyid er út á gotu eins og nafnid gefur til kynna og er tar saman safn af allskonar fólki og allskonar tónlist, allt frá Hip hop til Reaggy. Fólk ýmist ad rappa eda reykja gras. Partyid var frabear upplifun en sveitastelpurnar vissu ekki alveg hvernig thaer aettu ad haga sér i fjoldanum. Mjog ólíkt stemningunni i Valaskjálf, vaegast sagt! Braselíksu strákarnir eru einnig mjog fráburgdnir teim íslensku. Turftum ad passa vel upp á hvor adra tar sem teir áttu thad til ad kraekja i mann, ýmist um mittid eda hendina. Mikid fyrir ad leida mann...




Laugardagur: Byrjudum daginn a ad skoda Ipanema strondina og sidan var haldid nidur i midbaeinn og skodudum byggingar, kirkur og torg. Tokum tvi svo rólega um kvoldid til ad spara okkur fyrir morgundaginn....

Sunnudagur: Voknudum snemma og kiktum a strondina til ad reyna vorka tanid en endudum a ad skadbrenna eftir adeins tvo tima. Klukkan tvo var sidan haldid a fótboltaleik! Byrjudum a ad fara á bar rétt fyrir utan Marcana sem er adal leikvangurinn i  Rio og var byggdur fyrir heimsmeistarakeppnina 1950. Tar komast um 95.000 manns i saeti. Vid vorum i stúkunni med aestum Flamengo studningmonnum og okkar menn i unnu ad sjalfsogdu 1-0! Mjog skemmtileg upplifun, gedveik stemning! Hefdum reyndar viljad kunna login tar sem textinn var talvsvert flóknari en oleoleole....



Um kvoldid var sídan haldid lengst inn í Favelu sem er fátaekrahverfi hér i Rio i Funk party! Partyid var haldid i stórri skemmu og voru um 3000 manns. Fórum med hópi af hostelinu og var bílferdin eins og hin mesta rússíbanaferd! Margir hlógu og skemmtu sér á medan adrir héldu daudataki í Saetid og fóru med fadirvorid! Virkilega spes bílferd. En partyid var frábaert! Fengum adgang ad VIP svaedinu og gátum horft yfir allt dansgólfid. Thrátt fyrir litla kunnáttu í rassahristingum og funk dansi skelltum vid okkur a dansgólfid blákaldar án tess ad hafa hugmynd um hvad vid vaerum ad koma okkur í! Ágengi karlpeningsins var 10x verri en i Lapa partyinu. Hér er daemi um algengustu setningu kvoldsisn:
,,what´s you´re name? Kiss me!!!
,,Where are you from? Kiss me!!!
,,You´re beautiful! Kiss me!!!
En allra svaesnustu gerdu beina tilraun ad kossi, gripu um andlitid og rédust til atlogu! Tá braust fram í okkur íslenski kvennskorungurinn og slogum vid tha frá okkur eins og mýflugur med flugnaspada. Sumir voru thó ekki eins ágengir og undir lokin voru vid farnar ad geta dansad án áreitis og sýndu sumir takta sína. Harpa fékk einkakennslu frá innfaeddum i funki og er ordin pro núna:)







Daginn eftir var ferdinni heitid ad paradísaeyjunni Ilha Grande en nánar um thad sídar....!



Kvedja úr kaefandi hita
Harpa, Kristin, Beta og Birta.

(ath myndin er ekki tekin úr sundlauginni á vonarlandi heldur i graena lóninu á Ilha Grande) :)

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Farfuglar
  • Staður: Eskifjörður
  • Um mig: Við erum fjórar stelpur á leið í heimsreisu í Janúar, létum sko efnahagsrústirnar ekki á okkur fá =)

Heimsreisa 2009

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...